Auglýsing

Klukkan

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Kærasti

Leikur dagsins

Viti menn það er að koma 9. nóvember...tíminn er fljótur að líða

08. nóvember 2007 klukkan 19:56
Jájá 9.október er kominn og farinn og meira að segja komið út úr báðum prófunum og gott betur en það...það hefur ansi margt gerst síðan í bloggaði síðast. Ég er byrjuð að vinna aðeins með skólanum og kann bara vel við það, Örn kom heim í tvær vikur um daginn og það var ótrúlega gott að hitta hann, sakna hans alltaf jafnmikið.
Annars er mál málanna það að við mæðgurnar erum á leiðinni til ðeJúESSendA í verslunarferð, við erum að fara 8 stelpur saman og það verður brjálað stuð, ætlum einmitt að hittast á sunnudaginn og ræða skipulag og innkaup Hlæjandi öss það verður verslað og svo verður borðaru kalkúnn því við erum úti yfir þakkargjörðarhátíðina.

Annars verð ég að benda á fyndasta/mest spes blogg sem ég hef séð þessi maður þjáist ekki af sama bloggleysi og við hin, endilega teljið hversu mörg bloggin voru fyrsta daginn!!!

Það er ótrúlegt hvað tíminn er fljótur að líða ekki nóg með það að ég sé ekki búin að blogga í meira en mánuð heldur eigum við Keli tveggja ára sambandsafmæli á morgun...já þetta er sko fljótt að líða.

-Halldóra Kristín, verðandi verslunardrottning
Halldóra Kristín Magnúsdóttir
9 athugasemdir

Það vildi ég að góður guð gæfi að það væri kominn 9.október..

06. október 2007 klukkan 14:59
Jæja próf númer 1 og 2 búin, verklega prófið í sýklafræðinni gekk bara mjög vel og skriflega prófið líka. Skriflega prófið var reyndar með þeim gallaðari sem ég hef nokkurn tíman tekið. En hvað um það núna er veirufræðilesturinn bara kominn á fullt hann hófst reyndar eiginlega degi of seint þar sem ég fór að vinna á fimmtudaginn uppi í Blóðbanka útaf neyðarástandinu sem var mjög gaman, gaman að hitta alla og sjá að maður er ekki búin að gleyma hvernig á að gera þetta.

Annars sýndi hún Dagbjört Remúlaði-gella mér þetta myndband og ég verð bara að segja hann les hugsanir mínar..hversu lengi má ég bíða...


-Prófa Halldóra Kristín
Halldóra Kristín Magnúsdóttir
3 athugasemdir

Slaufusaga

01. október 2007 klukkan 18:51
Fann þessa sögu á vef krabbameinsfélagsins og langaði að deila henni með ykkur og um leið langar mig til að hvetja ykkur allar til að muna að leita sjálfar eftir hnútum í brjóstum ykkar.

Myndarlegur maður á miðjum aldri gekk hljóðum skrefum inn í kaffihúsið. Hann fékk sér sæti við eitt borðið og gerði sig líklegan til að panta. Áður en hann komst svo langt varð honum litið á hóp ungra manna við næsta borð. Það fór ekki á milli mála að þeir voru að gera grín að einhverju í fari hans. Um leið og hann mundi eftir litlu bleiku slaufunni, sem hann var með í jakkahorninu, þóttist hann vita hvað hefði vakið kátínu ungu mannanna. Maðurinn reyndi að láta sem ekkert væri, enda vissi hann sem var að viðbrögðin voru sprottin af fáfræði. En það var erfitt að leiða glottið á andlitunum hjá sér. Hann leit beint í augu eins af ungu mönnunum, benti á slaufuna og setti upp spurnarsvip. "Þetta?"

Það var eins og við manninn mælt - vinirnir ráku allir upp skellihlátur. Þeim sem var ávarpaður tókst að stynja upp nokkrum orðum. "Fyrirgefðu, en við vorum bara að tala um hvað litla bleika slaufan væri æðislega sæt við bláa jakkann þinn!"

Maðurinn með slaufuna benti spaugaranum að koma og setjast við borðið hjá sér. Ungi maðurinn gerði eins og hann bað, þótt hann langaði hreint ekki til þess. Maðurinn með slaufuna sagði lágum rómi: "Ég geng með þessa slaufu til að vekja fólk til vitundar um brjóstakrabbamein. Ég geri það til heiðurs móður minni."

"Æ, það var leitt. Dó hún úr brjóstakrabbameini?"

"Nei, nei. Hún er lifandi og við góða heilsu. En það voru brjóstin hennar sem nærðu mig í frumbernsku og þau voru sá hlýi barmur sem ég hjúfraði mig upp að þegar ég var hræddur eða einmana. Ég er þakklátur fyrir brjóst móður minnar og þakklátur fyrir að hún er heil heilsu."

"Jamm," umlaði hinn. "Ég skil."

"Ég geng líka með þessa slaufu til heiðurs eiginkonu minni," hélt maðurinn áfram.

"Og er hún í fínu formi líka?" spurði ungi maðurinn.

"Já, hún er við hestaheilsu. Brjóstin hennar hafa veitt okkur hjónunum mikinn unað í ástarlífinu og þau nærðu okkar yndislegu dóttur. Ég er þakklátur fyrir brjóstin á konunni minni og fyrir að hún er heilbrigð."

"Og þú gengur þá líklega með slaufuna til heiðurs dóttur þinni líka?"

"Nei, það er um seinan að heiðra dóttur mína með slaufu. Dóttir mín lést úr brjóstakrabbameini fyrir einum mánuði. Hún hélt að hún væri of ung til að fá brjóstakrabbamein; þess vegna gerði hún ekkert í því þegar hún fann lítinn hnút í brjóstinu fyrir tilviljun. Hún fann ekkert til og þar af leiðandi hélt hún að það væri ekkert að óttast."

Unga manninum var greinilega brugðið og skammaðist sín, og nú var hann hættur að glotta. "Fyrirgefðu, mikið er leiðinlegt að heyra þetta."

"En í minningu dóttur minnar geng ég stoltur með litla bleika slaufu sem gefur mér tækifæri til að uppfræða aðra. Farðu nú heim og talaðu við konuna þína og móður þína, dæturnar og vinkonurnar. Og eigðu þetta ?"

Maðurinn með slaufuna seildist ofan í vasa sinn og tók upp litla bleika slaufu sem hann rétti hinum. Ungi maðurinn mændi á hana, leit síðan upp eftir langa mæðu og spurði hvort hann vildi hjálpa sér að setja slaufuna á sig.

Í októbermánuði er sérstök athygli vakin á brjóstakrabbameini. Skoðaðu brjóstin reglulega og farðu í brjóstamyndatöku á tveggja ára fresti ef þú ert fertug eða eldri. Hvettu allar konur sem þér þykir vænt um til að gera slíkt hið sama. Sendu þetta til allra sem þú vilt vekja til vitundar um brjóstakrabbamein.

Halldóra Kristín Magnúsdóttir
Engin athugasemd

Prófatörn

01. október 2007 klukkan 18:09
Það vill svo skemmtilega til að ég er eignlega byrjuð í jólaprófunum mínum, er s.s. að klára núna áfanga í sýkla og veirufræði. Eftir þá byrja áfangar í lyfja- og meinafræði sem klárast ekki fyrr en í mars, svo ég er nokkurnveginn í jólaprófum núna.

Fyrsta prófið var í dag, verklegt próf í sýklafræði gekk bara mjög vel, verst að það er bara staðið fallið. Á fimmtudaginn tekur svo við skriflegt í sýklafræði og þriðjudaginn eftir það er veirufræðipróf. Þetta er annars hið prýðilegasta námsefni svo ég á ekkert svo bágt.

Annars er ég soldið svekt út í bloggar.is því núna er kominn október og ég ætlaði að gera síðuna bleika í tilefni af breastcancer-awareness mánuðnum en neibb, svo ég gerði hana eins bleika og ég gat.

Það er tvisvar á ári sem mig vantar eitthvað bleikt, sem ég á alls ekki, það er á kvennréttindadaginn 19. júní og svo í október, held ég verði bara að kaupa mér svona bleikt barmmerki, bleikuslaufuna.

http://www.krabb.is/lisalib/getfile.aspx?itemid=1275

-Prófa Halldóra
Halldóra Kristín Magnúsdóttir
Engin athugasemd

Til hamingju með afmælið!

23. september 2007 klukkan 11:33
Hann Keli er 25 ára í dag, til hamingju með afmælið ástin mín.
Hérna eru nokkar myndir af kappanum á Spáni núna í ágúst síðastliðnum.
http://render2.snapfish.com/render2/is=Yup6aQQ%7C%3Dup6RKKt%3AxxWtUq4PJ-0frj%3DQofrj7t%3DzrRfDUX%3AeQaQxg%3Dr%3F87KR6xqpxQQa0xanoxnQnxv8uOc5xQQQJGn0JQGoeoqpfVtB%3F*KUp7BHSHqqy7XH6gXoQP%7CRup6lQQ%7C/of=50,590,442
Elgtanaður með bleika ,,Friður" armbandið
http://render2.snapfish.com/render2/is=Yup6aQQ%7C%3Dup6RKKt%3AxxqpD0-Wt0frj%3DQofrj7t%3DzrRfDUX%3AeQaQxg%3Dr%3F87KR6xqpxQQa0xanoxnQnxv8uOc5xQQQJGn0JPlGnPqpfVtB%3F*KUp7BHSHqqy7XH6gXPnP%7CRup6lQQ%7C/of=50,590,442
Patagonia Steakhouse...ummm
http://render2.snapfish.com/render2/is=Yup6aQQ%7C%3Dup6RKKt%3AxxWtUq4PJ-0frj%3DQofrj7t%3DzrRfDUX%3AeQaQxg%3Dr%3F87KR6xqpxQQa0xanoxnQnxv8uOc5xQQQJGn0JPeeenqpfVtB%3F*KUp7BHSHqqy7XH6gXoQP%7CRup6lQQ%7C/of=50,590,442
Cocoa - Kebab in Pitabread..ummm

-Halldóra Kristín
Halldóra Kristín Magnúsdóttir
9 athugasemdir

Til hamingju Denni og Valdís

21. september 2007 klukkan 18:34
Denni bróðir mömmu giftist henni Valdísi sinni núna 8. september og þau eru núna farin til Spánar í húsið í brúðkaupsferð svo það kom í okkar(Kela) hlut að skreita og gera allt fínt og flott fyrir hin nýgiftu hjón.
Við fjölskyldan fórum öll á markað og keyptum ,,dýr" sem spila og dansa og svo skrifuðum við skemmtileg skilaboð á bleika-hjartalaga-postitmiða.
Jæja þá er það bara að skella inn Dísa 'n' the Dynapack, hver man ekki eftir Dynapackinum úr afmælinu hans Denna...



- Halldóra Kristín

p.s. mér finnast eyrun á Dynapacknum(kanínunni) best, sérstaklega þegar þau titra hehe...
Halldóra Kristín Magnúsdóttir
Engin athugasemd

Betra seint en aldrei

21. september 2007 klukkan 18:28
Jæja það er búið að vera meira en nóg að gera síðan við komum heim. Þegar við komum heim var skólinn þegar byrjaður og við því strax orðin aðeins eftir á í lestrinum...en það reddast nú allt.
Svo fórum við á frábæra tónleika með Davíð og Eyrúnu þar sem Norah Jones lék við hvern sinn fingur, alveg frábær söngkona þarna á ferð og mjög gaman að fara á þessa tónleika.
Við erum líka byrjuð á byrjendanámskeiði í samkvæmisdönsum er mjög skemmtilegt, þar eru líka Jón og Kristín, Davíð og Eyrún og svo er hún Svava Hróðný(vorum samlokur 6-8ára) og kærasti líka þarna, skemmtileg tilviljun. En þetta er hin besta skemmtun og góð hreyfing.

Ætla svo að reyna að setja inn nokkrar myndir frá Spáni og tónleikunum sem voru teknar á nýju myndavélina. En það verður að bíða aðeins betri tíma, ætli það gerist ekki þegar enn nær dregur prófum hjá mér.

- Halldóra Kristín
Halldóra Kristín Magnúsdóttir
2 athugasemdir

Heima er best

02. september 2007 klukkan 10:45
Við erum komin heim á klakann og á móti okkur tók rigningarsuddi. Skólinn er byrjaður á fullu en ég lofa að reyna að koma með ferðasögublogg um leið og ég hef það af að setja myndirnar af nýju myndavélinni inn í tölvuna.


Annars var æðislegt úti en alltaf er nú jafn gott að koma heim :)

-Halldóra Kristín
Halldóra Kristín Magnúsdóttir
Engin athugasemd

Hasta la vista baby

12. ágúst 2007 klukkan 11:58
Um verslunarmanna helgina fórum við Keli, Addi og Örn(frændi minn) upp í Skorradal í bústað. Við fundum okkur ýmislegt til dundurs, skelltum okkur upp að Andakílsárvikjunarlóni, skoðuðum búvélasafnið á Hvanneyri, gæddum okkur á borgfirsku sveitabrauði..ummm...fórum í heitapottinn, reyndum að finna ball, fundum myglaða tónleika og barnaskemmtun, svo það var mest megnis borðaður góður matur, spjallað og spilað. Ótrúlega góð helgi.

Annars er sumarið bara alveg að verða búið ég hætti í vinnunni á föstudaginn, það er búið að vera mjög fínt að vinna í blóðbankanum og virkilega gaman að vera óhrædd við að stinga...aðra. Á morgun förum við svo til Spánar og slökum vel á fyrir skólann, komum aftur í skólann úthvíld og elg-tönuð.

Njótið þess sem eftir er af sumrinu, ég vona að það verði gott veður hérna heima á klakanum.

-Halldóra Kristín
Halldóra Kristín Magnúsdóttir
1 athugasemd

Suðurhafseyjar

23. júlí 2007 klukkan 22:37
Þá er frábær helgi á enda runnin. Á föstudaginn héldum við Keli til Þorlákshafnar á móti okkur tók þvílík þoka og heljarinnar rok, og við vorum farin að reikna með kosý inni-helgi í eyjum með þeim Davíð, Eyrúnu og Ernu Sólveigu eins og fyrir ári. Við ákváðum að vera örugg þetta árið og fara með Herjólfi, fengum káetu og sváfum nær alla leiðina, sem betur fer því það var ansi mikill sjór.
Þegar við komum í höfn beið Davíð eftir okkur og á Smáragötunni beið þessi líka dýrindis heimabakaða pizza, frábær byrjun. Fyrir svefninn skelltum við okkur svo í heita pottinn og spjölluðum fram á nótt. Á laugardaginn fórum við svo í sundlaugina, þá var komið líka þetta yndislega veður að það sást bæði til fjalla og sólar...miklar framfarir síðan síðast þegar næsta hús var helst til óljóst í þokunni Hlæjandi Eftir sundferðina góðu þar sem sumir gæddu sér á meiru söltuvatni en aðrir, héldum við í gönguferð á Bryggjudaga niðri við Friðarhöfn, þar var keyptur dýrindis humar fyrir kvöldið. Eftir gönguna var tekinn smá power-nap áður en við fórum út í fjöru þar sem við grilluðum; humar, lamb og sykurpúða og sátum í kringum varðeld. Það gerist ekki betra en þetta veðrið hélst milt og gott og allir héldu saddir og sælir heim á leið. Eftir þessa svakalegu dagskrá var gott að komast upp í rúm og svífa á vit draumanna, sem voru margir og skrýtnir.
Á sunnudaginn voru okkur svo sýndir nokkrir velvaldir og frábærir staðir í Vestmannaeyjum áður en við héldum heim á leið með Herjólfi. Siglingin var mjög fín þar sem það var gott í sjóinn og við eins og áður sváfum nær alla leiðina. Takk kærlega fyrir okkur Davíð og Eyrún.
Eftir frábæra helgi er svo vinnuvikan hafin og á ég bara eftir að vinna þrjár vikur af þessu sumri, þetta er alltaf jafn fáránlega fljótt að líða.

-Halldóra Kristín
p.s. Hvað ætlar fólk annars að gera um verslunarmannahelgina? Er Þjóðhátíð ekki eina útihátíðin þetta árið?
Halldóra Kristín Magnúsdóttir
4 athugasemdir